Bryggjan opnaði 18. september 2008 með miklum látum og varð strax hluti af góðri veitingahúsaflóru Akureyrar. Bryggjan sérhæfir sig í eldbökuðum flatbökum og bera þær flestar mjög litskrúðug nöfn. Á Bryggjunni er góður andi og léttleikandi starfsfólk sem tekur ávalt á móti gestum með bros á vör. Flatbökurnar eru þær bestu í okkar sólkerfi og eru löngu orðnar heimsfrægar fyrir einstök bragðgæði og góða fyllingu. Á síðasta ári var Bóndinn valinn besta flatbakan á árinu hjá Bryggjuritinu, bæði í flokki fegurðar og bragðs. Þegar Bryggjan verður 100 ára, árið 2108 verður öllum landsmönnum boðið í mjög flotta veislu, þar sem allir bestu tónlistarmenn landsins munu koma fram.
440 6600





